Umdeildur listamaður í New York, Victor-Hugo Vaca II, tilkynnti í gær að hann sæktist eftir því að verða forsetaefni demókrata í kosningunum sem haldnar verða á næsta ári. Vaca II myndi þá keppa við demókratana Hillary Clinton og Barack Obama, sem bæði sækjast eftir embættinu.
Í yfirlýsingu Vaca II segir að hann sækist eftir forsetaembættinu í kjölfar listaverkaraðar sinnar sem ber nafnið „Lög og regla í Bandaríkjunum“. Vaca II vill með þessu sýna aðdáendum sínum hversu erfitt eða auðvelt það er fyrir innfæddan Bandaríkjamann að bjóða sig fram í mestu valdastöðu í heimi. Að auki vill hann hvetja þá kynslóð, sem hann segir stjórnmálamenn hafa logið að, til að taka þátt í stjórnmálum. |

Victor-Hugo Vaca II hefur lítið álit á George W. Bush . AP |